top of page

VERTU VELKOMIN/N Á ÚTSKRIFTARSÝNINGU MÍNA!

bakgrunnur.jpg
forsida_eg-unn.png

Nafn mitt er Brynjar Emil Friðriksson, fæddur 29. september árið 1978. Ég er uppalinn í Reykjanesbæ þar sem ég hef búið alla mína ævi. Frá unga aldri hef ég haft mikinn áhuga fyrir allskyns listsköpun. Frá því ég man eftir mér hef ég verið hugfanginn af tónlist sem og skáldsögum, arkitektúr, kvikmyndum og grafík. Allt frá því ég fór að kynna mér námið í grafískri miðlun hefur fagið heillað mig. Fyrir um 12 árum síðan byrjaði ég í fjarnámi þar sem ég kláraði grunnnámið að mestu. Síðan hefur sú hugsun sótt á mig í ríkara mæli að taka skrefið til fulls. Þá fyrir einu og hálfu ári síðan sagði ég starfi mínu lausu og hóf nám við Tækniskólann á sérsviði í grafískri miðlun. Þetta er ákvörðun sem ég er mjög sáttur við í dag.

bottom of page